Steingrímur fundar með erlendum ráðamönnum 6. janúar 2010 18:47
Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, heldur af landi brott í kvöld eða á morgun til fundar við erlenda ráðamenn. Ríkisstjórnin ætlar að sitja áfram þrátt fyrir synjun forseta en til stendur að halda þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave málinu undir lok næsta mánaðar. Ríkisstjórnin kom saman til aukafundar nú síðdegis til fjalla meðal annars um frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Icesave. Til stendur að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 20. febrúar vonast er til þess að Alþingi afgreiði frumvarpið á föstudag. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa haft í nógu að snúast í dag til slökkva þá elda sem hafa kviknað í kjölfar þeirrar ákvörðunar Forseta Íslands að skrifa ekki undir Icesave lögin. Össur Skarphéðinsson vildi þó lítið tjá sig um stöðu mála að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. „Ég ætla að tala við marga í kvöld og er búinn að tala við marga í dag," sagði Össur aðspurður hvort hann ætli að tala við Milliband utanríkisráðherra Bretlands í kvöld. Fjármálaráðherra segir að stjórnarflokkarnir séu ákveðnir í því að halda stjórnarsamstarfinu áfram. „Ég heyri ekkert annað en að menn séu það og ekki yrði á það bætandi held ég ef hér yrði pólitísk upplausn ofan í hitt," sagði Steingrímur. Fjármálaráðherra talaði í dag við starfsbræður sína í Bretlandi, Hollandi og á Norðurlöndum. Mörg mikilvæg verkefni séu þó framundan. Eitt standi þó upp úr. „Það er augljóst hvað það er núna. Það er að verja landið eins og hægt er. Draga úr neikvæðum áhrifum af atburðum gærdagsins og halda virkum stjórnmálatengslum á milli Íslands og gagnaðilanna og nágrannalandanna ," sagði fjármálaráðherra. Steingrímur ætlar að fara af landi brott til að funda með erlendum ráðamönnum. „Það gæti skýrst í kvöld hvað mig varðar hvernig mínum næstu dögum verður háttað. Það er verið að vinna þetta mjög hratt og ég get ekki alveg svarið fyrir það hvort ég fer úr landi í fyrramálið eða föstudaginn. það er mjög líklegt að ég fari til einhverja funda á næstu sólarhringum," sagði Steingrímur.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira