Innlent

RIFF hófst í kvöld

Úr kvikmyndinni Cyrus. Hér sést leikarinn John C.Reilly.
Úr kvikmyndinni Cyrus. Hér sést leikarinn John C.Reilly.

Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF hófst í Reykjavík í kvöld. Hátíðin stendur yfir í ellefu daga og hefur hún aldrei verið stærri. Það var Jón Gnarr, borgarstjóri, sem setti kvikmyndahátíðina.

RIFF fer fram á fjölmörgum stöðum víða um borgina. Má þar helst nefna Bíó Paradís og Háskólabíó. En einnig verður töluvert um sérviðburði, til dæmis sundbíó í Sundhöll Reykjavíkur annað kvöld.

Opnunarmynd RIFF í þetta sinn var bandaríska gamanmyndin Cyrus eftir þá bræður Jay og Mark Duplass. Myndin skartar stórleikurunum John C.Reilly, Jonah Hill og Marisu Tomei í aðalhlutverkunum.

Rætt var við Hrönn Marínósdóttur, stjóranda RIFF, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hægt er að horfa á fréttina hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×