Talsmaður neytenda vill lögbann á gengislán 1. júlí 2010 10:24 Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda.
Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, hefur óskað eftir heimild til þess að grípa til lögbanns til varnar neytendum hjá dómsmála- og mannréttindaráðherra. Hann ritaði ráðherra bréf þar sem farið var fram á þessa heimild fyrir embættið til þess að leita lögbanns eða höfða dómsmál í þágu heildarhagsmuna neytenda. Ástæðan fyrir því að talsmaður neytenda krefst heimildarinnar er nýfallinn dómur Hæstaréttar en Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið beindu þeim tilmælum til fjármálafyrirtækja í gær að miða við lægstu seðlabankavexti þegar lánin væru reiknuð út. Talsmaður neytenda telur þessi tilmæli brjóta í bága við stjórnarskránna og samningslög. Að lokum segir Gísli: „Hefur talsmann neytenda í ýmsu tilliti skort úrræði til þess að fylgja eftir þessum lögbundnu verkefnum sínum en eins og kunnugt er ræður embættið yfir þekkingu á þessu sviði. Því hefur embættið mótað þá stefnu að fá slíka heimild auk lagaheimildar til þess að höfða hópmál ef réttarfarslögum verður breytt í þá veru." Þess má geta að ASÍ og FÍB hafa yfir að ráða slíkri heimild. Hún hefur hinsvegar aldrei verið nýtt.Hægt er að lesa beiðni talsmanns neytenda í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54 Fimmtíu milljarðar færast á neytendur Eftirlitsstofnanir telja ófært að miða við samningsvexti þegar myntkörfulán verða endurreiknuð og mælast til að Seðlabankavextir verði viðmiðið. Samtök neytenda fordæma tilmælin og segja þau á skjön við lög um neytendavernd. 1. júlí 2010 07:30 Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22 Enn þarf Hæstiréttur að úrskurða Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið telja sig vera að gegna skyldu sinni, að gæta stöðugleika fjármálakerfisins, með útgáfu tilmæla til fjármálastofnana í gær um útreikning gengistryggðu lánanna, sem Hæstiréttur hafði dæmt að færu í bága við lög. 1. júlí 2010 00:01 Segja tilmæli Seðlabanka „sorgleg“ og „út í hött“ Talsmenn skuldara segja að Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gangi erinda fjármála og fjármögnunarfyrirtækja með tilmælum sínum sem séu sorgleg og út í hött. Þeir hvetja lánþega til að greiða ekki. Forstjóri FME segir að greiðsla í samræmi við tilmælin feli ekki í sér samþykki á nýjum lánaskilmálum. 30. júní 2010 18:33 Hvetur neytendur til þess að bíða átekta „Ég hvet neytendur til þess að bíða átekta,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, um tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins sem voru kynnt í morgun. 30. júní 2010 16:13 Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00 Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07 Íslandsbanki segist ráða vel við gengisdóm Íslandsbanki getur vel lifað af áhrifin af gengisdómi Hæstaréttar. Bankinn hefur á síðustu dögum farið vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og metið hugsanleg áhrif Hæstaréttar á eigið fé Íslandsbanka. 24. júní 2010 09:37 Gengislánin: Vildi ekki lögfræðiálit Viðskiptaráðherra taldi ekki ástæðu til að fá lögfræðiálit á gengistryggðum lánum þar sem málið væri fyrir dómstólum. Eygló Þóra Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir andvaraleysi. 24. júní 2010 14:07 Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12 Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24 Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48 Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Sjá meira
Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54
Fimmtíu milljarðar færast á neytendur Eftirlitsstofnanir telja ófært að miða við samningsvexti þegar myntkörfulán verða endurreiknuð og mælast til að Seðlabankavextir verði viðmiðið. Samtök neytenda fordæma tilmælin og segja þau á skjön við lög um neytendavernd. 1. júlí 2010 07:30
Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22
Enn þarf Hæstiréttur að úrskurða Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið telja sig vera að gegna skyldu sinni, að gæta stöðugleika fjármálakerfisins, með útgáfu tilmæla til fjármálastofnana í gær um útreikning gengistryggðu lánanna, sem Hæstiréttur hafði dæmt að færu í bága við lög. 1. júlí 2010 00:01
Segja tilmæli Seðlabanka „sorgleg“ og „út í hött“ Talsmenn skuldara segja að Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gangi erinda fjármála og fjármögnunarfyrirtækja með tilmælum sínum sem séu sorgleg og út í hött. Þeir hvetja lánþega til að greiða ekki. Forstjóri FME segir að greiðsla í samræmi við tilmælin feli ekki í sér samþykki á nýjum lánaskilmálum. 30. júní 2010 18:33
Hvetur neytendur til þess að bíða átekta „Ég hvet neytendur til þess að bíða átekta,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, um tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins sem voru kynnt í morgun. 30. júní 2010 16:13
Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00
Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07
Íslandsbanki segist ráða vel við gengisdóm Íslandsbanki getur vel lifað af áhrifin af gengisdómi Hæstaréttar. Bankinn hefur á síðustu dögum farið vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og metið hugsanleg áhrif Hæstaréttar á eigið fé Íslandsbanka. 24. júní 2010 09:37
Gengislánin: Vildi ekki lögfræðiálit Viðskiptaráðherra taldi ekki ástæðu til að fá lögfræðiálit á gengistryggðum lánum þar sem málið væri fyrir dómstólum. Eygló Þóra Harðardóttir, þingkona Framsóknarflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir andvaraleysi. 24. júní 2010 14:07
Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12
Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24
Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48