Hvetur neytendur til þess að bíða átekta 30. júní 2010 16:13 Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. „
Ég hvet neytendur til þess að bíða átekta," segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, um tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins sem voru kynnt í morgun. Gísli telur tilmælin stangast á við lög og vitnar í samningslögin um að óvissa í samningum eigi að falla neytandanum í hag. „Ég vitna líka í stjórnarskránna um formlegar heimildir þar sem það er lagt bann á að hlutast sé í niðurstöðum dómstóla," segir Gísli og biður neytendur um að bíða átekta þar til hann hefur sent frá sér opinber tilmæli sem hann mun birta á morgun. Tilmæli Seðlabankans og FME eru afar umdeild en þar er bönkum ráðlagt að taka mið af vöxtum Seðlabankans í stað þeirra samningsvaxta sem finna má í samningum lántakenda. Lægstu vextir í samningunum eru allt að 2 prósent á meðan vextir Seðlabankans eru 8,25 prósent. Því er um verulegar breytingar á samningi að ræða, lánastofnunum í hag, að mati Gísla. „Þetta er mjög óheppilegt og þvert á allar sáttartillögur. Þarna er farið eftir ýtrustu kröfum bankanna," segir Gísli sem er einnig afar ósáttur við að ekki var haft samráð við hann né önnur hagsmunasamtök neytenda. Eftir að tilmæli Gísla birtast á morgun þurfa neytendur að ákveða hvort þeir greiði samkvæmt þeim tillögum. Sætti bankinn sig ekki við það þarf hann að lögsækja neytendur og þá verður úr því skorið hvort tilmæli Seðlabankans og FME séu rétt eða talsmann neytenda.
Tengdar fréttir Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54 Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22 Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00 Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07 Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12 Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24 Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48 Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira
Dómstólar eiga síðasta orðið Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um gengistryggð lán segir að þótt tímabundin óvissa ríki um endanlega niðurstöðu dómstóla sé mikilvægt að stöðuleiki á fjármálamarkaði verði áfram tryggður. Ríkisstjórnin virðir sjálfstæði Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins og ber fullt traust til þessara stofnana við að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Dómstólar eigi þó síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna lánanna. 30. júní 2010 12:54
Tilmælin eiga að skapa festu í viðskiptum og traustu fjármálakerfi Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, segir að tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans til fjármálafyrirtækja vegna óskuldbindandi gengistryggingarákvæða sé ætlað að skapa festu í viðskiptum og stuðla að öruggu fjármálakerfi. Með tilmælunum séu FME og Seðlabankinn að sinna þeirri lagaskyldu sem á þeim hvílir. Hann segir brýna almannahagsmuni krefjast þess að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið setji fram almennar leikreglur sem varðveiti stöðugleika á meðan greitt sé úr réttaróvissu. 30. júní 2010 10:22
Lilja Mósesdóttir: Það á allt eftir að loga í málaferlum „Það á allt eftir að loga í málaferlum,“ segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, um tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um að lánastofnanir eigi að fylgja óverðtryggðum vöxtum Seðlabankans, í stað samningsvaxta gengistryggðra lánasamninga. 30. júní 2010 11:00
Samningar verði endurreiknaðir miðað við vexti Seðlabankans Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa sent fjármálafyrirtækjum þau tilmæli að þeim beri að endurreikna þau lán sem innihalda gengistryggingarákvæði sem eru óskuldbindandi samanber dóma Hæstaréttar. Ekki verði miðað við upphaflega vexti lánanna sem í mörgum tilvikum voru í kringum þrjú prósent, heldur vexti sem Seðlabankinn ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum sem nú gilda á lánamarkaði. Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að lægstu vextir á almennum óverðtryggðum útlánum er um 8,25% en á verðtryggðum lánum eru vextirnir 4,80%. 30. júní 2010 09:07
Segir Seðlabankann og FME hvetja til lögbrota „Ég fæ ekki betur séð en að Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið séu að hvetja til lögbrota," segir Marinó G. Njálsson, hjá Hagsmunasamtökum heimilanna, um tilmæli sem Seðlabankinn og FME beina til fjármálafyrirtækja vegna gengistryggðra lánasamninga og var tilkynnt um í morgun. 30. júní 2010 10:12
Segja seðlabankann og FME hafa lýst yfir stríði Samtök lánþega segja í yfirlýsingu að Seðlabanki og FME hafi í raun lýst yfir stríði á hendur almennum borgurum þessa lands með tilmælum sínum sem eftirlitsstofnanirnar tilkynntu í morgun. Þar var þeim tilmælum beint til fjármálafyrirtækja að fylgja vöxtum seðlabankans í stað þess að reikna úr lánin út frá samningsvöxtum. Vextir seðlabankans eru 8,25 prósent. 30. júní 2010 11:24
Segja ákvörðun FME og Seðlabankans vonbrigði Neytendasamtökin segja tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins vonbrigði. Neytendasamtökin hafa áður gefið út yfirlýsingu þar sem þau sögðu að samningsvextir ættu að standa þrátt fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt gengistryggingu króna við erlendan gjaldmiðil ólögmæta. 30. júní 2010 13:48