Erlent

Saka dönsk stjórnvöld um ritskoðun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dönskum stjórnvöldum er ekki alveg sama um hvað borgararnir gera á netinu.
Dönskum stjórnvöldum er ekki alveg sama um hvað borgararnir gera á netinu.
Gagnrýnendur stjórnvalda í Danmörku setja þau á stall með stjórnvöldum í Kína og Norður - Kóreu vegna strangs aðhalds með netnotkun. Í lesendabréfi í Berlingske Tidende sem stjórnendur nokkurra risafyrirtækja senda frá sér eru stjórnvöld sökuð um ritskoðun.

Á fáum stöðum er lokað fyrir eins mikið af efni á netinu og í Danmörku og nú stendur til þess að lokað verði fyrir erlendar síður sem bjóða upp á fjárhættuspil. Í lesendabréfinu í BT segir að hugmyndir ríkisstjórnarinnar geti í versta falli verið upphafið að enda hins frjálsa internets.

Helge Sander, upplýsingamálaráðherra dönsku ríkisstjórnarinnar, er algerlega ósammála. „Ríkisstjórnin stendur vörð um tjáningarfrelsið, bæði á internetinu og annarsstaðar," segir hann. Hann bætir því við að hann telji það ekki brjóta í bága við tjáningarfrelsið að vilja takmarka aðgang borgaranna að fyrrgreindum vefsíðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×