Obama boðar breytingar á utanríkisstefnu 11. janúar 2009 19:34
Barack Obama, verðandi Bandaríkjaforseti, boðaði breytingar á utanríkisstefnu Bandaríkjanna í viðtali í dag. Hann sagðist vilja beinar viðræður á skilyrða við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. Hann segist ætla að standa við loforð sitt um að loka Guantanamo-fangabúðunum. Obama, sem tekur við embætti tuttugasta þessa mánaðar, kom fram í viðtalsþætti á bandarísku sjónvarpsstöðinni ABC í dag. Þar útlistaði hann stefnu sína í ýmsum málum. Hann ítrekaði þau áform sín að loka Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu en sagði að það yrði líkast til ekki hægt á fyrstu hundrað dögum hans við völd líkt og hann hafi vonað. Obama hélt áfram í þá stefnu að vilja ekki tjá sig beint um átökin á Gaza fyrr en eftir valdatöku sína. Hann sagði að hópur samningamanna yrði þegar skipaður sem yrði falið að reyna að tryggja áframhald friðarferlisins fyrir botni Miðjarðarhafs. Obama er sannfærður um að mesta áskorun stjórnar sinnar verði að semja við Írana. Þeir væru að styðja við hryðjuverk með stuðningi við Hamas í tegnum Hizbollah samtökin. Þeir væru einnig að sækjast eftir kjarnorkuvopnum sem gæti mögulega komið af stað kjarnorkuvopnakapphlaupi í Mið-Austurlöndum. Írönum yrði sýnd virðing og rætt við þá beint. Ekki ætti að setja skilyrði fyrir þeim viðræðum ólíkt því sem hefur verið á valdatíma Bush, fráfarandi forseta.
Mest lesið Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Innlent Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni á leið til Kanarí-eyja Erlent Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Innlent Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Innlent Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Innlent Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Erlent Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Erlent Skammdegið víkur með hækkandi sól Innlent Fleiri fréttir Hótar Musk frekari sektum bregðist hann ekki við barnaníði Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni á leið til Kanarí-eyja Kynnir sér möguleika varðandi Íran og leggur toll á vinaríki klerkastjórnarinnar Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Vara Evrópuríkin við því að taka á móti embættismönnum frá Taívan Þvert nei Grænlendinga við yfirtöku Bandaríkjanna Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Hefja formlega rannsókn á kynferðislegum fölsunum Musk Stuðningsmenn klerkastjórnarinnar fjölmenna á götum Tehran Hafa lokað yfir hálfri milljón samfélagsmiðlaaðganga Rannsaka nú og skoða ákærur gegn seðlabankastjóranum Trump íhugar íhlutun í Íran Danir standi á krossgötum Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Páfi hefur áhyggjur af tjáningarfrelsi á Vesturlöndum Bandaríkin og Ísrael verði skotmörk verði ráðist að Íran Spítalar yfirfullir af látnum mótmælendum Bandaríkin gerðu loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi Óttast innrætingu íslamista í breskum háskólum Hverfi Kúrda í Aleppo í herkví Þeir allra ríkustu búnir með „kolefniskvótann“ Meðal möguleika að greiða Grænlendingum milljónir Nýtt myndband af banaskotinu: „Helvítis tík“ Allt bendi til þess að breytingar séu í farvatninu Annar eigandi skemmtistaðarins í Sviss í haldi Verði að eignast Grænland svo Kína og Rússland geri það ekki Tuga saknað eftir ruslskriðu á Filippseyjum Bresk stjórnvöld segja viðbrögð X „móðgandi“ Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Sjá meira