Erlent

Bráðabirgðastjórn tekur við í Tékklandi

Jan Fischer er forsætisráðherra Tékklands til bráðabirgða.
Jan Fischer er forsætisráðherra Tékklands til bráðabirgða. Mynd/AP
Bráðabirgðastjórn tók við völdum í Tékklandi í dag. Henni verður falið að stjórna landinu fram að snemmbúnum þingkosningum í október. Fyrri stjórn hrökklaðist frá völdum í mars eftir að þing samþykkti vantraust á hana. Stjórnin hafði þá mátt sæta mikilli gagnrýni vegna aðgerða í baráttunni við áhrif alheimskreppunnar í Tékklandi.

Vaclav Klaus, forseti landsins, sagði í dag að þar með væri bundinn endir á stjórnmálalega óvissu í landinu eftir fall síðustu stjórnar. Nú væri hægt að snúa sér að mikilvægum úrlausnarverkefnum fyrir land og þjóð. Kosningar hefðu verið haldnar í Tékklandi um mitt næsta ár en er flýtt vegna stjórnarkreppunnar.

Samkvæmt samkomulagi stærstu stjórnmálaflokka á tékkneska þinginu verður Jan Fischer, yfirmaður tékknesku hagstofnunnar, forsætisráðherra í bráðabirgðastjórninni. Hann mun ekki tengdur neinum stjórnmálaflokki á þingi. Hann nýtur stuðnings tveggja stærstu flokkanna á þingi til starfsins. Þrír stærstu flokkar Tékklands völdu aðra ráðherra í ríkisstjórnina en saman eru þessir flokkar með ríflegan meirihluta á þinginu.

Tékkar eru nú í forsvari fyrir Evrópusambandið fram til loka júní. Vaclav Klaus, forseti, mun nú á meðan koma fram fyrir hönd Tékka á vettvangi Evrópusambandsins í stað forsætisráðherra Tékklands í ljósi þess að bráðabirgðastjórn er við völd og ekki kjörinn fulltrúi í embættinu.

Klaus hefur löngum haft efasemdir um Evrópusambandsaðild Tékka og telja stjórnmálaskýrendur að áhugavert verði að sjá hvernig hann taki á þessu nýja hlutverki. Klaus mun þurfa að stýra mörgum mikilvægum fundum fyrir Evrópusambandið þar á meðal fundum með leiðtogum Kína, Rússlands og Suður-Kóreu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×