Ferrari-inn hans Ronaldo í klessu - myndir Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. janúar 2009 17:40 Þessi glæsikerra er heldur illa farin. Nordic Photos / AFP
Cristiano Ronaldo eyðilagði Ferrari-bifreið sína er hann ók á vegarstólpa í göngum rétt utan við Manchester-borg í dag. Eins og sést á meðfylgjandi myndum neðst í greininni er bíllinn gerónýtur. En til allrar lukku slapp Ronaldo heill frá öllu saman og æfði með Manchester United í dag eins og venjulega. Lögreglan hefur auglýst eftir vitnum til að varpa ljósi á hvað nákvæmlega gerðist en engir aðrir bílar lentu í árekstrinum. Félagi Ronaldo hjá United, markvörðurinn Edwin van der Sar, var skammt undan í Bentley-bifreið sinni. Við áreksturinn fór eitt dekkið undan bílnum og hafnaði um tvö hundruð metra frá þeim stað sem bíllinn staðnæmdist. Jody Lomax varð vitni að árekstrinum. „Ferrari-inn klessti beint á vegginn, fremsta vinstra dekkið fór undan bílnum og Ronaldo steig úr honum." „Ég var nú sjálf í sjokki. En það var allt í lagi með hann þó hann væri eðlilega nokkuð skelkaður. Það var líka synd að sjá bílinn fara svona," sagði hún. Lögreglan sagði enn fremur að Ronaldo hefði verið látinn blása í áfengismæli en að ekkert óeðlilegt hafi komið fram þar. Samkvæmt þessu er því ekkert því til fyrirstöðu að Ronaldo geti leikið með sínum mönnum gegn Chelsea á sunnudaginn.Lögreglan var ekki lengi að koma á vettvang.Nordic Photos / AFPLögregluþjónn skoðar klessukeyrða Ferrari-inn.Nordic Photos / AFPÞetta eru göngin sem Ronaldo var að keyra í.Nordic Photos / AFPSem betur fer slasaðist enginn.Nordic Photos / AFPKranabílar mættu á vettvang.Nordic Photos / AFPNordic Photos / AFPVonandi var Ronaldo með fákinn í Kaskó.Nordic Photos / AFPUpp fer bílinn ...Nordic Photos / AFP... og burt.Nordic Photos / AFP
Mest lesið „Varð fljótt að hinni verstu martröð“ Sport Svarar Brynjari fullum hálsi: „Óboðleg tilraunastarfsemi á börnum í íþróttum“ Körfubolti Tveir Vestramenn fluttir með sjúkrabíl eftir leik í gær Íslenski boltinn Reiknar ekki með Shaq í oddaleiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“ Körfubolti Biður liðsfélagana afsökunar eftir að hafa selt ólympíugullið Sport Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Íslenski boltinn Handtekinn í fyrra en vann nú með tárin í augunum Golf Sigurður Breki á spítala eftir harkalegt samstuð Íslenski boltinn Gæti þurft úrslitaleik á Ítalíu eftir VAR-drama Fótbolti „Fallegasta samband sem hægt er að mynda“ Körfubolti Fleiri fréttir Glæsimark Rice gulltryggði Arsenal Meistaradeildarsæti Draumaendir hjá Vardy í kveðjuleiknum Chelsea vann á Wembley og fullkomnaði þrennuna Stórkostleg stemning og sætur sigur í síðasta leiknum í Guttagarði Átti Henderson að fá rautt spjald? „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Dóttir Liams Gallagher á von á barni með guðsyni Guðna Bergs Þrír frá Liverpool og tveir frá Forest tilnefndir sem leikmaður ársins Maður Serenu kaupir hlut í Chelsea Awoniyi vaknaður eftir lífshættulegar en vel heppnaðar aðgerðir Segist ekki ætla að hætta en viðurkennir að hann gæti verið rekinn Kulusevski missir af úrslitaleiknum gegn Man United Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Kvennalið Everton mun spila á Goodison sem verður ekki rifinn Man City sagt hafa lagt fram „mega“ tilboð í Wirtz Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Leiður að heyra púað á vin sinn: „Getur ekki sagt fólki hvernig því á að líða“ Eigandi Nott. Forest reifst við Nuno þjálfara inn á vellinum Pirruð Man City stjarna: „Þeir reyndu ekki einu sinni að vinna“ Arsenal kom til baka á móti meisturunum á Anfield Newcastle upp í þriðja sætið eftir sigur á Chelsea Enn eitt tapið á Old Trafford Sjá meira
Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Íslenski boltinn
Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Íslenski boltinn