Talibanar skjóta flugskeytum á Kabúl 4. ágúst 2009 08:27 Frá Afganistan. Myndin tengist fréttinni ekki að öðru leyti. MYND/Getty
Flugskeytaárás var gerð á Kabúl Höfuðborg Afganistans í morgun. Talibanar eru taldir standa á bakvið árásirnar en að minnsta kosti níu flugskeytum var skotið á höfuðborgina rétt fyrir dögun að sögn lögreglu í Kabúl. Að minnsta kosti eitt barn slasaðist í árásinni og tjónið er töluvert en enn hafa engar fregnir borist af mannfalli. Að minsta kosti tvær eldflaugar lentu í Wazir Akbar Khan hverfinu í borginni en þar eru mörg sendiráð erlendra ríkja í landinu til húsa auk þess sem höfuðstöðvar herliðsins á vegum NATO sem verið hefur í landinu undanfarin ár eru í hverfinu. Aðrar flaugar lentu vítt og breitt um borgina. Þetta er umfangsmesta árás sem gerð hefur verið á borgina í nokkur ár en Talibanar hafa heitið því að spilla forsetakosningum sem fyrirhugaðar eru í Afganistan þann tuttugasta ágúst næstkomandi. Þeir hafa hvatt fólk til þess að sniðganga kosningarnar en þetta er í annað sinn sem Afganar kjósa sér forseta síðan Talibanar voru hraktir frá völdum í landinu árið 2001. Ofbeldisverkum þeirra hefur fjölgað í landinu undanfarnar vikur í aðdraganda kosninganna en til þessa hefur Kabúl sloppið að mestu. Að minnsta kosti tólf létust í gær þegar sprengja sprakk í vesturhluta landsins í gær og um helgina létust níu hermenn úr liði NATÓ í nokkrum árásum en bandalagið hefur fjölgað í herliði sínu í landinu um nokkraar þúsundir síðustu mánuði, ekki síst til þess að tryggja að kosningarnar fari fram með eðlilegum hætti.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira