Erlent

Vopnahlé Kóreumanna frá 1953 úr sögunni

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Kim Jong-il er lítt við alþýðuskap þessa dagana.
Kim Jong-il er lítt við alþýðuskap þessa dagana.

Norður-Kóreumenn slitu í dag vopnahléi sínu gagnvart Suður-Kóreu sem staðið hefur allar götur síðan Kóreustríðinu lauk árið 1953. Ástæðan, að þeirra sögn, er sú ákvörðun sunnanmanna að taka þátt í því með Bandaríkjamönnum að stöðva skip á leið til Norður-Kóreu og leita í þeim að efnum og tólum til kjarnorkusprengjugerðar. Líta Norður-Kóreumenn á þá háttsemi sem hreina og klára stríðsyfirlýsingu en spennan á Kóreuskaganum hefur stigmagnast síðustu daga og vikur vegna endurtekinna tilrauna norðanmanna með kjarnorkusprengjur og eldflaugar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×