Ísraelar ætla frá Gasa í dag 20. janúar 2009 06:30 Palestínsk fjölskylda hefur misst heimili sitt og þarf nú að takast á við daglegt líf á Gasasvæðinu eftir að árásum Ísraela er lokið. MYND/nordicphotos/AFP „
Fólk er svo sannarlega ánægt að sjá okkur,“ sagði Ahmed, einn af lögreglumönnum Hamas-hreyfingarinnar, sem nú eru komnir aftur út á götur Gasaborgar eftir þriggja vikna stanslausar árásir Ísraelsmanna. Auk lögreglumanna eru borgaralegir starfsmenn Hamas byrjaðir að ferðast um Gasasvæðið til að meta skemmdirnar sem Ísraelar hafa valdið. Víða á svæðinu eru íbúðarhús jafnt sem opinberar byggingar orðnar rústir einar. Erfitt er að komast í mat og aðrar nauðsynjar. Þriggja vikna árásir Ísraela kostuðu að minnsta kosti 1.259 Palestínumenn á Gasasvæðinu lífið, auk þess sem meira en fimm þúsund manns særðust. Palestínumenn, mannréttindasamtök og Sameinuðu þjóðirnar fullyrða að um það bil helmingur hinna föllnu hafi verið almennir borgarar, þar af hundruð á barnsaldri. Hamashreyfingin sagði í gær að hún hefði einungis misst 48 af stríðsmönnum sínum, en að auki hafi hreyfingin misst 165 lögreglumenn. Önnur herská samtök á Gasasvæðinu segjast hafa misst 104 af sínum mönnum. Ísraelar sögðust í gær vonast til þess að herinn yrði farinn frá Gasasvæðinu áður en Barack Obama verður settur í embætti forseta Bandaríkjanna síðdegis í dag – svo fremi sem sprengjuflaugarnar fari ekki að fljúga yfir landamærin til Ísraels á ný.- gb
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira