Erlent

Ísland næst í Evrópuröðinni?

Frederik Reinfeldt.
Frederik Reinfeldt.

Ísland gæti orðið næsta þjóð sem fær aðild að Evrópusambandinu. Svíar taka við forsæti í sambandinu í dag. Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar sagði á fundi með fréttamönnum í gær að í sex mánaða forsætistíð landsins verða lögð megináhersla á baráttuna gegn loftslagsbreytingum.

Svíum hefur tekist að auka landsframleiðslu sína um fimmtíu prósent síðan 1990 og minnka jafnframt útblástur gróðurhúsalofttegunda um tíu prósent. Þeim finnst þeir því vera í góðri stöðu til að þrýsta á aðrar þjóðir.

Svía bíður einnig stórt verkiefni í stækkunarferli sambandsins. Þar eru einkum fjögur lönd nefnd sem næstu aðildarþjóðir. Króatía, Tyrkland, Makedónía og nú upp á síðkastið Ísland. Slóvenía blokkerar hinsvegar Króatíu vegna landamæradeilu. Kýpur stendur í vegi fyrir Tyrklandi og Grikkir hóta að beita neitunarvaldi gegn Makedóníu þar sem þeir sætta sig ekki við nafn landsins.

Fréttaskýrendur telja því möguleika á að Ísland fari framfyrir þessi þrjú lönd. Á blaðamannafundinum svaraði Reinfeldt því játandi að Ísland gæti sótt um aðild meðan Svíar eru í forsæti. Svíar hafa áður lýst því yfir að þeir muni hjálpa Íslandi við aðildarumsókn ef til þess kemur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×