Erlent

32 látnir í sprengingu í Írak

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.

32 eru látnir í það minnsta í mikilli sprengingu sem skók fjölmennan markað í suðurhluta Íraks í morgun. Lögregla í bænum Al-Bathaa segir að tála látinna kunni að hækka en tugir manna eru slasaðir eftir árásina. Bíl fylltum af sprengiefni var ekið inn á miðjan markaðinn og hann síðan sprengdur í loft upp.

Árásum af þessu tagi hefur farið fækkandi í landinu undanfarið en á síðustu vikum hefur þeim þó fjölgað á ný í suðurhluta landsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×