Erlent

Öryggisvörður látinn eftir skotárás í Washington

Öryggisvörður í Holocaust Memorial safninu í Washington sem varð fyrir skotárás í kvöld er látinn. Maður gekk inn í safnið vopnaður riffli og hóf að skjóta. Kollegar öryggisvarðarins skutu byssumanninn sem er mun vera í lífshættu.

Samkvæmt erlendum fréttamiðlum heitir byssumaðurinn James von Brunn. Hann er 88 ára gamall og tengist samtökum kynþáttahatara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×