Erlent

Leiðtogi Tamíl-Tígra fallinn

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Leiðtogi Tamíl-Tígranna á Sri Lanka, Prabhakaran, er fallinn. Þetta fullyrða talsmenn stjórnarhersins og segja að lík uppreisnarleiðtogans hafi fundist í sjúkrabíl í morgun en bílinn hafi hann ætlað sér að nota, við fimmta mann til að flýja bardagsvæðið sem stjórnarherinn var búinn að umkringja. Prabhakaran stofnaði Tamíl-Tígra á sínum tíma og lýsti því ávallt yfir að hann léti ekki taka sig á lífi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×