Búast við öldu ofbeldisverka í Írak Óli Tynes skrifar 22. júní 2009 18:30
Hinn þrítugasta þessa mánaðar munu langflestir bandarísku hermannanna sem eftir eru í Írak yfirgefa borgir og bæi og flytja inn í stórar herstöðvar utan við Bagdad og aðrar stórborgir. Þeir verða því ekki tiltækir til þess að aðstoða íraska starfsbræður sína nema þeir séu sérstaklega kallaðir út. Þetta er liður í áætlun um að flytja alla bandaríska hermenn heim frá Írak fyrir árslok tvöþúsund og ellefu. Lítill vafi er á að hryðjuverkamenn munu notfæra sér þetta og þess hafa raunar sést merki á síðustu dögum. Það hefur verið sannkallað sprengjuregn sem hefur kostað á annað hundrað manns lífið. Sprengjuárásirnar hafa flestar verið í þeim hluta Bagdad sem shía múslimar byggja. Saddam Hussein var súnníti og í stjórnartíð hans voru shía múslimar tíðum beittir órétti þótt þeir séu í meirihluta í landinu. Íraska lögreglan segir að Al Kaida standi á bakvið sprengjutilræðin undanfarna daga og sé tilgangurinn sá að grafa undan ríkisstjórninni.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira