Viðbrögð helstu aðila: Sáttamáli um framfarir en ekki stöðnun 25. júní 2009 14:11 Frá undirrituninni í dag. MYND/Pjetur
Fjölmargir aðilar koma að undirritun stöðugleikasáttmálans sem var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu rétt fyrir klukkan tvö í dag. Við það tækifæri tjáðu ýmsir sig um samninginn og sagði Jóhanna Sigurðardóttir að um tímamótaviðburð væri að ræða. Aldrei hefði verið mikilvægara að undirrita slíkan sáttmálan en einmitt nú og hann væri lykilatriði í endurreisninni. Við undirritunina var létt yfir mannskapnum en það voru aðilar vinnumarkaðarins ásamt ríkisstjórninni sem undirrituðu samninginn. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sagði að verkalýðshreyfingin hefði lagt mikið á sig við gerð þessa samnings og þakkaði gagnaðilum sínum kærlega fyrir samstarfið. Tiltók hann þá sérstaklega samstarfið við ríkisstjórnina sem hann sagði að hefði verið til fyrirmyndar, en hann væri þá að miða við samskipti við ríkisstjórnir fyrri ára í því sambandi. Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambandsins sagðist vona að samningurinn myndi leiða til betri kjara og þá um leið betra lífs. Hann sagði þó að á endanum yrði það sagan sem myndi dæma um hversu vel þetta samkomulag myndi reynast. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins sagði þetta vera sáttmála um framfarir en ekki stöðnun og sem slíkur væri hann mjög mikilvægur. Hann sagði Samtök atvinnulífsins hafa lagt mikla áherslu á að árangur næðist í ríkisfjármálum og hömlum á gjaldeyrisviðskiptum yrði aflétt. Einnig sagði hann lykilatriði að vextir yrðu lækkaðir. Vilhjálmur sagði einnig að það væri sín von að þær hörmungaspár sem landsmenn stæðu nú frammi fyrir myndu ekki rætast en til þess væri sáttmálinn einmitt gerður, það er að segja til þess að koma í veg fyrir það. Stöðugleikasáttmáli Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, SSF, Samtaka atvinnnulífsins, ríkisstjórnarinnar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Tengdar fréttir Eiríkur: Sameinumst um það sem við erum sammála um Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir auðvelt að finna atriði í stöðugleikasáttmálanum sem samvari ekki beint við stefnu og áherslur einstakra aðila og samtaka. 25. júní 2009 15:05 Skrifað undir klukkan hálftvö Undirritun Stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar hefur verið sett klukkan hálftvö. Fyrst stóð til að skrifa undir í Þjóðmenningarhúsinu klukkan hálf eitt í dag, því var síðan frestað til hálf tvö. Þá bárust fréttir þess efnis úr Forsætisráðuneytinu að undirritunin dagist fram á daginn. Nú hefur hins vegar verið tilkynnt um að undirritunin verði í Þjóðmenningarhúsinu klukkan hálftvö. 25. júní 2009 11:34 Búið að skrifa undir stöðugleikasáttmálann Samningar hafa tekist um stöðugleikasáttmála sem er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar við endurreisn efnahagslífsins. Forsvarsmenn ríkisstjórnar, sveitarfélaga, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar og stéttarfélaga skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Stöðugleikasáttmálinn tekur til margra þeirra helstu þátta sem mestri óvissu hafa verið háðir síðustu mánuðina og er sáttmálinn ein þeirra meginstoða sem framtíðar uppbygging efnahagslífsins hvílir á. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera segir þetta afara mikilvægan áfanga og veigamikla forsendu fyrir endurreisnarstarfinu á næstu misserum. 25. júní 2009 13:54 Jóhanna meinaði samningsaðilum að yfirgefa stjórnarráðið Forsætisráðherra kallaði samningsaðila varðandi stöðugleika sátt á sinn fund í gærkvöldi og tilkynnti þeim að þeir fengju ekki að yfirgefa stjórnarráðið fyrr en samkomulag væri í höfn um nýjan stöðugleikasáttmála. Skattar hækka mikið á næsta ári en skattahækkanir verða allt að 45 prósent af aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að ná endum saman í ríkisfjármálum. 25. júní 2009 12:06 Stefnt að stöðugleikasáttmála í dag Stefnt er að undirritun stöðugleikasáttmálans svokallaða í dag en stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar hafa fundað stíft síðustu daga og vikur. 25. júní 2009 07:10 Sáttmáli um nýja sókn í atvinnumálum Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með stöðugleikasáttmálanum hafi náðst breið samstaða allra aðila á vinnumarkaði, sveitarfélaga og ríkis um átak til að endurreisa efnahagslífið með fjölþættum aðgerðum. 25. júní 2009 15:17 Viðræðum slitið fyrir annarra hönd „Forseti ASÍ og formaður SA ákváðu í beinni útsendingu að við hefðum slitið viðræðum,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sem segir opinbera starfsmenn fráleitt hafa slitið viðræðum um stöðugleikasáttmála í gær. 25. júní 2009 03:00 Mest lesið Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Fleiri fréttir Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Sjá meira
Eiríkur: Sameinumst um það sem við erum sammála um Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir auðvelt að finna atriði í stöðugleikasáttmálanum sem samvari ekki beint við stefnu og áherslur einstakra aðila og samtaka. 25. júní 2009 15:05
Skrifað undir klukkan hálftvö Undirritun Stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar hefur verið sett klukkan hálftvö. Fyrst stóð til að skrifa undir í Þjóðmenningarhúsinu klukkan hálf eitt í dag, því var síðan frestað til hálf tvö. Þá bárust fréttir þess efnis úr Forsætisráðuneytinu að undirritunin dagist fram á daginn. Nú hefur hins vegar verið tilkynnt um að undirritunin verði í Þjóðmenningarhúsinu klukkan hálftvö. 25. júní 2009 11:34
Búið að skrifa undir stöðugleikasáttmálann Samningar hafa tekist um stöðugleikasáttmála sem er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar við endurreisn efnahagslífsins. Forsvarsmenn ríkisstjórnar, sveitarfélaga, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar og stéttarfélaga skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Stöðugleikasáttmálinn tekur til margra þeirra helstu þátta sem mestri óvissu hafa verið háðir síðustu mánuðina og er sáttmálinn ein þeirra meginstoða sem framtíðar uppbygging efnahagslífsins hvílir á. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðhera segir þetta afara mikilvægan áfanga og veigamikla forsendu fyrir endurreisnarstarfinu á næstu misserum. 25. júní 2009 13:54
Jóhanna meinaði samningsaðilum að yfirgefa stjórnarráðið Forsætisráðherra kallaði samningsaðila varðandi stöðugleika sátt á sinn fund í gærkvöldi og tilkynnti þeim að þeir fengju ekki að yfirgefa stjórnarráðið fyrr en samkomulag væri í höfn um nýjan stöðugleikasáttmála. Skattar hækka mikið á næsta ári en skattahækkanir verða allt að 45 prósent af aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar til að ná endum saman í ríkisfjármálum. 25. júní 2009 12:06
Stefnt að stöðugleikasáttmála í dag Stefnt er að undirritun stöðugleikasáttmálans svokallaða í dag en stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðar hafa fundað stíft síðustu daga og vikur. 25. júní 2009 07:10
Sáttmáli um nýja sókn í atvinnumálum Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með stöðugleikasáttmálanum hafi náðst breið samstaða allra aðila á vinnumarkaði, sveitarfélaga og ríkis um átak til að endurreisa efnahagslífið með fjölþættum aðgerðum. 25. júní 2009 15:17
Viðræðum slitið fyrir annarra hönd „Forseti ASÍ og formaður SA ákváðu í beinni útsendingu að við hefðum slitið viðræðum,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sem segir opinbera starfsmenn fráleitt hafa slitið viðræðum um stöðugleikasáttmála í gær. 25. júní 2009 03:00