Viðræðum slitið fyrir annarra hönd 25. júní 2009 03:00 staðan rædd Þingað hefur verið í Karphúsinu undanfarna daga. Félög munu ræða tillögu forsætisráðherra í baklandinu í dag og nái menn saman verður skrifað undir samninginn. fréttablaðið/stefán „
Forseti ASÍ og formaður SA ákváðu í beinni útsendingu að við hefðum slitið viðræðum,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, sem segir opinbera starfsmenn fráleitt hafa slitið viðræðum um stöðugleikasáttmála í gær. Um kvöldmatarleytið bárust fregnir af því að opinberir starfsmenn hefðu sagt sig frá viðræðum og rætt var við fulltrúa ASÍ og SA sem staðfestu það. Eiríkur segir að menn hafi verið ósammála um áherslur og sérkennilegt sé hjá ASÍ og SA að lýsa því yfir að opinberir starfsmenn hafi slitið viðræðum, eingöngu vegna þess að þeir voru ekki á sömu skoðun og samböndin tvö. „Fulltrúar opinberra starfsmanna vildu ekki binda hendur ríkisstjórnarinnar inn í framtíðina með því að fyrirfram væri ákveðið hvert hlutfall skatta og tilfærslna væri,“ segir Eiríkur. ASÍ og SA hafi talið það óviðunandi. Þegar opinberir starfsmenn hafi yfirgefið Karphúsið klukkan 18 hafi þeir ákveðið að þetta hefði engin áhrif á þeirra markmið og unnið yrði að kjarasamningum á þessum nótum. „Þessi meintu slit komu okkur því í opna skjöldu.“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kallaði samningsaðila í Stjórnarráðið í gær og kynnti þeim sáttatillögu. Hún verður kynnt í baklandi samtakanna í dag og síðan verður fundað í Karphúsinu klukkan 11. „Þá kemur í ljós hvort við höfum eitthvað í höndunum til að skrifa undir þegar líður á daginn,“ segir Eiríkur.- kóp
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Erlent Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Sjá meira