Erlent

Svínaflensuskip einangrað við Venesúela

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Strandlengja Margarita-eyju en við hana liggur Ocean Dream.
Strandlengja Margarita-eyju en við hana liggur Ocean Dream.

Spænska skemmtiferðaskipið Ocean Dream hefur verið einangrað við Venesúela eftir að þrír farþegar þess greindust með svínaflensu. Auk þeirra hafa yfir 40 einhver einkenni flensunnar en 1.200 farþegar eru um borð. Enginn mun yfirgefa skipið næstu vikuna en það liggur við eyju úti fyrir strönd Venesúela og er í eigu ferðaskrifstofunnar Royal Caribbean Cruises.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×