Erlent

Líbýskur hryðjuverkamaður vill deyja heima

Tæplega þrjúhundruð manns létu lífið í Lockerbie-hryðjuverkinu.
Tæplega þrjúhundruð manns létu lífið í Lockerbie-hryðjuverkinu.

Skoski dómsmálaráðherrann Kenny MacAskill hefur ákveðið að hitta líbýska hryðjuverkamanninn Abdelbaset Ali Al-Megrahi sem var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir Lockerbie-hryðjuverkið en þá sprengdi Megrahi sprengju um borð í flugvélinni Pan Am Flight 103 en 270 manns létu lífið við sprenginguna árið 1988.

Megrahi hefur áfrýjað dómi sínum en sjálfur er hann kominn með banvænt krabbamein. Á fréttavef BBC kemur fram að Megrahi vilji eyða síðustu dögunum í Líbýu. Þarlend yfirvöld hafa óskað eftir að hann verði framseldur til Líbýu en það er ekki hægt þar sem Megrahi hefur áfrýjað málinu. Og það sem meira er, dómarinn sem á að dæma í málinu gekkst undir hjartaaðgerð og getur því ekki kveðið upp úrskurð um málið fyrr en í haust.

Því vill Megrahi hitta skoska dómsmálaráðherrann til þess að fela honum málið. Lögmaður Megrahi telur að hann muni ekki lifa til haustins og því þarf að hafa hraðar hendur á.

Heimildir BBC herma að Megrahi hafi boðist til þess að hætta við að áfrýja málinu fái hann að deyja á fósturjörðinni. Ekki er búið að ákveða dagsetningu varðandi fund þeirra MacAskill og Megrahi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×