Erlent

Útafarastofu lokað vegna illrar meðferðar á líkum

Jarðarför. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Jarðarför. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.

Dómari í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað að útfarastofu í fylkinu skuli lokað eftir að í ljós kom að starfsmaður hennar sagaði fætur látins manns við kálfa til þess að koma honum fyrir í kistunni.

Starfsmaðurinn notaði rafmagnssög til þess að stytta hinn látna sem var um tveir metrar á hæð.

Málið komst upp fjórum árum eftir gjörninginn en það var fyrrverandi starfsmaður útfarastofunnar sem tilkynnti atvikið. Eigandi stofunnar neitaði þessu í upphafi. Að lokum var líkið grafið upp og þá kom í ljós að lappirnar hefðu sannarlega verið skornar af við kálfa.

Að lokum játaði útfarastjórinn að það hefði verið faðir sinn sem stytti manninn með svo ósmekklegum hætti.

Hinn látni var jarðaður á ný - nú í kistu sem hæfði stærð hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×