Castro reiðubúinn til viðræðna við Bandaríkin 17. apríl 2009 12:02 Raul Castro MYND/AP
Raul Castro, forseti Kúbu, segir að hann sé reiðubúinn til viðræðna við Bandaríkin um hvað sem er, þar með talið um pólitíska fanga. Í ræðu sem hann flutti á ráðstefnu sósíaliskra leiðtoga Suður-Ameríkuríkja í Venesúela í dag sagði Raul Castro að Kúbverjar hefðu sent Bandaríkjamönnum skilaboð um að þeir væru reiðubúnir til viðræðna hvenær sem þeir vildu. Við höfum sagt þeim að við séum reiðubúnir að ræða um hvað sem er, sagði Castro. Við erum reiðubúnir að ræða um mannréttindi, fjölmiðlafrelsi, pólitíska fanga, allt allt allt. Hann sagði að einu skilyrðin sem þeir settu væru að viðræðurnar yrðu á jafnréttisgrundvelli og að ekki væri efast um sjálfstæði Kúbu. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur sagt að Bandaríkjamenn séu reiðubúnir að bæta sambúðina við Kúbu. Hann hefur létt ýmsum höftum af Kúbu sem hefur verið í bandarísku viðskiptabanni síðan árið 1962. Árinu áður skipulögðu Bandaríkjamenn innrás kúbverskra útlaga í eyríkið til þess að steypa Fidel Castro af stóli. Svínaflóainnrásin misheppnaðist gersamlega og Fidel Castro sat af sér níu bandaríska forseta þar til hann afsalaði sér völdum á síðasta ári vegna heilsubrests.
Mest lesið Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent Svona gekk að flytja vindmyllurnar Innlent „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Innlent „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Innlent „Við erum bara að mótmæla“ Innlent Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Erlent Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Erlent Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Erlent Fleiri fréttir Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Segja Evrópu „útungunarstöð“ hryðjuverkaógnarinnar Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Sjá meira