Erlent

Stóru flokkarnir í Bretlandi tapa fylgi vegna hneykslismáls

Gordon Brown, forsætisráðherra og formaður Verkmannaflokksins.
Gordon Brown, forsætisráðherra og formaður Verkmannaflokksins.
Í nýrri könnun Lundúnablaðsins Guardian mælist Verkamannaflokkurinn í Bretlandi nú með 28% fylgi en Íhaldsflokkurinn með 39%. Báðir flokkar hafa tapað fylgi eftir að upplýst var um umdeildar endurgreiðslur til þingamanna allra flokka.

Því er spáð að vegna óánægju með stóru flokkana fái smærri flokkar töluvert fylgi í sveitastjórnakosningum og kosningum til Evrópuþingsins í næsta mánuði. Stjórnmálaskýrendur telja að þær kosningar geti ráðið úrslitum um framtíð Gordons Browns, forsætisráðherra og formanns Verkamannaflokksins.

Mikill meirihluti flokksmanna Verkamannaflokksins í Bretlandi vill ekki að Brown verði leiðtogi flokksins í næstu kosningum, ef marka má nýja könnun sem vefsíða grasrótarhreyfingar flokksins gerði meðal flokksmanna.Þar kemur fram að 62% þeirra vilji Brown úr forystusætinu.

Meðal þeirra sem menn vilja sjá í staðinn eru David Miliband, utanríkisráðherra, og Alan Johnson heilbrigðisráðherra, sem nýtur mests fylgis.


Tengdar fréttir

Búist við afsögn forsetans í dag vegna útgjaldahneykslisins

Breskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Michael Martin, forseti neðri málstofu breska þingsins, hefði ákveðið að víkja og að hann myndi tilkynna um það síðar í dag. Það geri hann vegna útgjaldahneykslisins sem hefur skekið breskan þing heim og þjóðlíf allt í Bretlandi síðustu viku. Ekki mun þó vitað hvort hann hættir strax eða situr fram að næstu þingkosningum sem verða í síðasta lagi um mitt næsta ár.

Brown í óláni

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, nýtur ekki mikils stuðnings meðal samflokksmanna sinna í Verkamannaflokknum en mikill meirihluti þeirra vill hann ekki sem leiðtoga flokksins í næstu kosningum ef marka má nýja könnun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×