Erlent

Brown í óláni

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, nýtur ekki mikils stuðnings meðal samflokksmanna sinna í Verkamannaflokknum en mikill meirihluti þeirra vill hann ekki sem leiðtoga flokksins í næstu kosningum ef marka má nýja könnun. Þar kemur fram að 62 prósent vilji Brown úr forystusætinu en meðal þeirra sem menn vilja sjá þar í stað hans eru David Miliband utanríkisráðherra, Harriet Harman, aðstoðarleiðtogi Verkamannaflokksins, og Alan Johnson heilbrigðisráðherra sem nýtur mests fylgis sem arftaki Brown.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×