Erlent

Obama kynnir nýjar mengunarreglur

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Barack Obama Bandaríkjaforseti mun í dag kynna hugmyndir sínar varðandi nýjar reglur um eldsneytisnotkun bíla sem stefna að því að draga mjög úr notkuninni og þar með útblæstri og tilheyrandi mengun. Nýju reglurnar gera ráð fyrir því að á næstu fjórum árum eftir 2012 takist að draga úr útblæstri koltvísýrings um allt að 30 prósent með sparneytnari bílvélum. Talsmenn bílaframleiðendanna General Motors og Toyota segjast styðja tillögur Obama.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×