Erlent

Norður-Kóreumenn segjast undirbúa stríð

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft tveimur eldflaugum í viðbót, báðum skammdrægum. Flugþol eldflauganna er um 130 kílómetrar og segir suðurkóreska Yonhap-fréttastofan að önnur eldflaugin sé til notkunar gegn skotmörkum á flugi en hinn gegn skotmörkum á sjó.

Í yfirlýsingu frá norðurkóreskum stjórnvöldum segir að Barack Obama Bandaríkjaforseti sé landinu fjandsamlegur og herinn búi sig nú af kappi undir árás Bandaríkjahers úr lofti sem á landi. Stjórnmálaskýrendur segja umsvif Norður-Kóreumanna einnig benda til þess að Kim Jong-il, leiðtogi landsins, sé nú að sýna það heljartak sem hann hefur á Norður-Kóreu svo tryggt sé að einn sona hans muni eiga greiða leið í valdastólinn þegar hann hverfur frá völdum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×