Erlent

Ítalir og Frakkar standa sig ekki í Afríkuaðstoð

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Opin klóaklögn í fátækrahverfi í Kenýa.
Opin klóaklögn í fátækrahverfi í Kenýa. MYND/AFP

Ítalir og Frakkar hafa ekki staðið sig í stykkinu við að aðstoða fátæk Afríkuríki þrátt fyrir yfirlýsingar þar að lútandi á ráðstefnu árið 2005. Þetta kemur fram í skýrslu hjálparsamtakanna One, sem sett voru á fót af Bono, söngvara U2, og berjast gegn fátækt og fylgifiskum hennar. Sir Bob Geldof og Kofi Annan, fyrrum framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skrifa inngang skýrslunnar og segja þar meðal annars að þróunarríkin hafi grætt hvað minnst á alþjóðavæðingu heimsins en samt sem áður verði þau einna verst úti nú þegar skórinn kreppir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×