Nýútskrifaðir Bandaríkjamenn leita í opinber störf Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. júní 2009 08:17 Skilti á lofti í mótmælum á Wall Street fyrr í vor. MYND/Reuters
Nýútskrifað háskólafólk í Bandaríkjunum leitar nú fyrst og fremst að störfum hjá hinu opinbera, ólíkt því sem áður var. Það er af sem áður var, bankar og fjármálafyrirtæki freista nýútskrifaðra háskólaborgara í Bandaríkjunum lítið eins og nú er komið. Þeir sem nú eru að útskrifast eiga margir hverjir eldri systkini sem lentu í punktur com-hruninu, það er að segja ástandinu sem skapaðist þegar netbólan sprakk og hugbúnaðarfyrirtæki riðuðu til falls í þúsundavís, og nú lendir þessi kynslóð í bankahruninu. Það er ókræsilegt að vera á leið út á bandarískan vinnumarkað af skólabekknum núna. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er 9,4 prósent og samkeppnin við eldra og reyndara fólk á vinnumarkaðnum er hörð. Samtök háskóla og vinnuveitenda í Bandaríkjunum segja samdrátt í nýráðningum þeirra sem nýlega hafa lokið námi nema tæpum 22 prósentum og munar þar langmestu um fjármálageirann. Nánast eini staðurinn í Bandaríkjunum þar sem verið er að skapa ný störf er höfuðborgin Washington en hið opinbera ræður nú af kappi mannskap til að hafa eftirlit með aðstoð ríkisins við ýmis fyrirtæki vegna fjármálahrunsins auk alls konar afleiddra starfa í tengslum við þetta. Þetta er helsta von nýútskrifaðs skólafólks um þessar mundir og flykkist það til Washington til að komast í vinnu hjá ríkinu. Aðdráttarafl bankanna er hins vegar horfið.
Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Sjá meira