Erlent

Eldri Bandaríkjamenn streyma á vinnumarkað

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Eldri Bandaríkjamenn, sem geta ekki lifað af lífeyrisgreiðslum sínum, leita sér nú að vinnu sem óðast og hefur fjöldi eldri borgara, sem leita eftir vinnu, aukist um 120 prósent síðasta árið. Félagsráðgjafi nokkur segir í samtali við Reuters að fjármálakreppan hafi haft skelfileg áhrif á allt samfélagið en eldra fólk hafi þó orðið sérstaklega illa úti. Áður hafi fólk farið á eftirlaun og ekki snúið aftur á vinnumarkaðinn nema í undantekningartilfellum en nú sé mikið um að fólk 75 ára og eldra sé komið aftur í vinnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×