Erlent

Bandarískir blaðamenn dæmdir í Norður-Kóreu

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Blaðamennirnir, Laura Ling og Euna Lee.
Blaðamennirnir, Laura Ling og Euna Lee. MYND/Reuters

Norðurkóreskur dómstóll hefur fundið tvo bandaríska blaðamenn seka um að fara ólöglega inn í landið og dæmt þá til 12 ára þrælkunarvinnu. Fréttamennirnir, Laura Ling og Euna Lee, starfa fyrir bandarísku sjónvarpsstöðina Current TV. Þær voru staddar við landamæri Kína og Norður-Kóreu við vinnslu fréttar í mars þegar þær voru teknar höndum. Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur skorað á norðurkóresk stjórnvöld að láta blaðamennina þegar í stað lausa en ráðuneytið hefur enn ekki látið neitt frá sér um dóminn opinberlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×