Erlent

Gullpálminn til Austurríkis

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Gullpálminn á kvikmyndahátíðinni í Cannes féll austurríska leikstjóranum Michael Haneke í skaut í gærkvöldi. Margir höfðu gefið sér að Quentin Tarantino stæði uppi með pálmann í höndunum en kvikmynd Haneke, Das Weisse Band, eða hvíti borðinn varð að lokum hlutskarpari. Hins vegar hlaut Austurríkismaðurinn Cristoph Waltz verðlaun sem besti leikarinn í aðalhlutverki í mynd Tarantinos, Inglourious Basterds [sic].






Fleiri fréttir

Sjá meira


×