Erlent

Fæla unglinga frá skemmtigarði með hátíðnihljóði

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Almenningsgarður í Tókýó.
Almenningsgarður í Tókýó.

Yfirvöld í Tókýó í Japan hafa tekið tæknina í sínar hendur til að koma í veg fyrir að unglingar vinni þar skemmdarverk um nætur.

Þeir kalla gripinn moskítófluguna en þar er um að ræða tæki sem gefur frá sér hátíðnihljóð sem er gjörsamlega óbærilegt þeim sem það heyra. Hvernig stendur þá á því að það angrar ekki alla sem í garðinn koma um nætur? Ekki er að spyrja að því hve lunknir Japanar eru þegar kemur að hátæknimálum.

Hljóðið sem moskítóflugan sendir frá sér er á tíðninni 17 kílóhertz. Hljóð á þeirri tíðni heyrir fólk upp að vissum aldri en eftir því sem árunum fjölgar glatar fólk hæfileikanum til að nema hljóð á vissum tíðnisviðum. Á því sviði liggur einmitt tíðnin 17 kílóhertz sem gerir það að verkum að börn og unglingar eingöngu greina hljóðið. Það truflar því ekki þá sem komnir eru til vits og ára en er afskaplega pirrandi í eyrum hinna yngri.

Haruyuki Masuda, sem fer með stjórn almenningsgarða í Tókýó, segir að lítt hafi dugað að halda úti vaktmönnum í þessum tiltekna garði sem er stór og mikill og unglingar vinni að jafnaði skemmdarverk á mannvirkjum í garðinum sem kosti um milljón íslenskra króna ár hvert. Hljóðið er nú sent út í tilraunaskyni frá 11 á kvöldin til fjögur á morgnana og bíða menn spenntir eftir útkomunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×