Erlent

Evrópa reynir að bjarga Aung San

Óli Tynes skrifar

Herforingjastjórnin í Burma er að reyna að fá Aung San Suu Kyi dæmda í fimm ára fangelsi til viðbótar vegna þess að bandarískum manni tókst að henni forspurðri að komast inn á heimili hennar.

Aung San hefur verið í stofufangelsi meira og minna síðan flokkur hennar vann stórsigur í kosningum í Burma fyrir nítján árum.

Herforingjastjórnin ógilti þær kosningar. Fangavist Aung San á að ljúka hinn tuttugasta og sjöunda þessa mánaðar.

Herforingjarnir krefjast þess að hún verði framlengd í fimm ár vegna heimsóknar Bandaríkjamannsins. Réttarhöld vegna þessa hafa staðið í fimm daga.

Ráðstefna Asíu- og Evrópuríkja hefst í Vietnam í næstu viku. Þar ætla utanríkisráðherrar Evrópuríkjanna að leggja að stjórnvöldum í Burma að blása réttarhöldin af.

Ekki er búist við að evrópsku ráðherrarnir fái mikinn stuðning frá asískum starfsbræðrum sínum.

Kínverjar hafa þegar lýst því yfir að Vesturlönd eigi að láta Burma í friði.

Burma og Kína undirrituðu í mars síðastliðnum samning um að leggja olíu- og gasleiðslu yfir landamæri ríkjanna.

Það mun stytta mjög flutningsleiðir Kínverja á þessum mikilvægu orkugjöfum sem þeir verða sífellt háðari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×