Erlent

Unglingar skutu mann í Hundige

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Þrír unglingar eru í haldi lögreglu í Hundige, rétt utan við Kaupmannahöfn, grunaðir um að hafa skotið 22 ára gamlan mann í hnakka og handlegg þar sem hann ók bifreið sinni í nótt. Tveir árásarmannanna óku upp að bíl mannsins á bifhjóli og hófu skothríð. Ökumaðurinn reyndi að forða sér en byssumaðurinn skaut þá mörgum skotum gegnum afturrúðu bílsins með fyrrgreindum afleiðingum. Hann er ekki talinn í lífshættu. Hinir handteknu eru 15 og 16 ára gamlir og verður í dag tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×