Erlent

Heimurinn ekki lengur í frjálsu falli segir OECD

Óli Tynes skrifar

Þótt fáar góðar fréttir berist af afkomu þjóða segir Angel Gurria forstöðumaður OECD að heimurinn sé ekki lengur í frjálsu falli. Það hafi hægt á niðursveiflunni.

Gurria varaði við því að ef ekki yrði farið fram með miklum aga gæti viðsnúningur dregist.

Hann sagði að þrátt fyrir áhyggjur af vaxandi skuldum Bandaríkjanna myndi batinn hefjast fyrr þar en í Evrópu, þar sem björgunarpakki bandaríkjanna hefði verið stærri.

Kreppan hófst sem kunnugt er vegna undirmálslána á bandaríska fasteignamarkaðinum og breiddist eins og eldur í sinu út um allan heim.

Angel Gurria var spurður að því hvort þjóðarframleiðsla í heiminum myndi fara að aukast í árslok.

Hann sagðist svara því játandi. Það þýði ekki að það fari að sjást augljósar jákvæðar tölur heldur vísbendingar um að hagkerfin séu að hætta að dragast saman.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×