Erlent

Ísraelar biðja um friðarviðræður

Óli Tynes skrifar

Fyrir nokkrum vikum ljáði Benjamín Netanyahu forsætisráðherra Ísraels loks máls á því að palestínumenn fengju að stofna sitt sjálfstæða palestinska ríki.

Undanfarið hafa Ísraelar verið að slaka talsvert á klónni gagnvart palestínumönnum og meðal annars fjarlægt eftirlitsstöðvar og vegatálma.

Á ríkisstjórnarfundi í dag hvatti Netanyahu svo leiðtoga palestínumanna til að mæta til friðarviðræðna.

Palestínumenn segja hinsvegar ekki nóg gert. Þeir muni ekki mæta til neinna viðræðna fyrr en búið sé að leysa ýmis ágreiningsmál. Meðal annars að hætt verði að stækka landnemabyggðir gyðinga á Vesturbakkanum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×