Erlent

Fangi frá Guantanamo kominn til New York

Guðjón Helgason skrifar
Fyrsti fanginn úr Guantanamo-fangabúðunum sem rétta skal yfir fyrir almennum dómstól í Bandaríkjunum er kominn til New York. Hann er grunaður um aðild að al Kaída hryðjuverkasamtökunum.

Ahmed Ghailani er ákærður fyrir aðild að sprengjuárásum á sendiráð Bandaríkjanna í Austur-Afríkuríkjunum Keníu og Tansaníu árið 1998. Fleiri en tvö hundruð féllu í árásunum. Ghailani, sem er frá Tansaníu, var handtekinn í Pakistan 2004. Að sögn BBC var hann fyrst fluttur í leynifangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, og síðan í fangabúðir Bandaríkjamanna við Guantanamó-flóa á Kúbu.

Fram kemur á fréttaveg BBC að samkvæmt útskrift af yfirheyrslum yfir Ghailani í mars 2007 hafi hann viðurkennt að hafa útvegað spregiefnið sem hafi verið notað í árásinni í Tansaníu. Hann hafi hins vegar ekki vitað hvað hafi átta að gera við sprengiefnið fyrr en árásin hafi verið gerið. Hann hafi síðan beðið bandarísk stjórnvöld og ættingja þeirra sem féllu afsökunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×