Erlent

Sjö ný svínaflensutilfelli í Bretlandi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Sjö ný tilfelli af svínaflensu greindust í Bretlandi í gær og voru fjögur skólabörn á meðal þeirra sem greindust með flensuna. Þar með eru staðfest svínaflensutilfelli í landinu orðin 55. Heilbrigðisyfirvöld segja skólabörnin að líkindum hafa smitast af flensunni í skólanum, áður en kennsluönn lauk þar í síðustu viku. Neita þau þó að gefa upp um hvaða skóla hafi verið að ræða. Þau svínaflensutilfelli sem greinst hafa í Bretlandi fram að þessu hafa öll verið væg og fólkið strax fengið lyfjameðferð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×