Renzaho fer í lífstíðarfangelsi 15. júlí 2009 02:45 Tharcisse Renzaho Sannað þótti að hann hafi lagt á ráðin og hvatt til morðanna 1994.Nordicphotos/AFP
Stríðsglæpadómstóll á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Tharcisse Renzaho, 65 ára fyrrverandi ríkisstjóra í Kigali, höfuðborg Rúanda, hafi verið einn helsti forsprakki fjöldamorðanna þar árið 1994. Fyrir glæpi sína var Renzaho dæmdur í ævilangt fangelsi. Sem ríkisstjóri höfuðborgarinnar var hann jafnframt yfirmaður lögreglunnar. Dómstóllinn, sem hefur aðsetur í Tansaníu, segir ljóst að Renzaho hafi lagt á ráðin um morðin og hvatt bæði hermenn og almenna borgara til þess að setja upp vegatálma, þar sem hægt væri að stöðva för Tútsa á flótta og ráða þá af dögum. Erik Mose, aðaldómari dómstólsins, sagði að Renzaho hafi sjálfur átt hlut að morðum á meira en 100 Tútsum í kirkju nokkurri. Hann hafi verið á staðnum bæði fyrir og eftir morðin og látið undir höfuð leggjast að stöðva þau. „Hann tók einnig þátt í að fjarlægja líkin," sagði Mose. Meira en hálf milljón manna varð hundrað daga morðæði Hútúa að bráð. Hinir myrtu voru bæði Tútsar, sem eru í minnihluta íbúa landsins, og hófsamir Hútúar, sem vildu hlífa Tútsum. Stríðsglæpadómstóllinn í Tansaníu hefur þegar fellt dóma yfir 39 sakborningum, en sex þeirra voru sýknaðir. - gb
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira