Erlent

Litla krúttið

Óli Tynes skrifar
Ungfú Ellie með sigurborðann.
Ungfú Ellie með sigurborðann. Mynd/AP

Þessi mynd er af henni Ungfrú Ellie. Hún varð  sigurvegari í samkeppni um ljótasta hund heims sem haldin var í Seattle í Bandaríkjunum í gær.

Ungfrú Ellie er fimmtán ára gömul og blind. Hún er af tegund sem kallast Chinese Crested Hairless.

Við verðum nú að segja að þótt Ungfrú Ellie geti ekki undir neinum kringumstæðum kallast falleg, þá er hún ósköp krúttleg.

Við föllumst ekki á að hún sé hundljót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×