Zimbabve taki upp eigin gjaldmiðil á ný 26. júní 2009 12:16 Robert Mugabe.
Robert Mugabe forseti Zimbabve segir að landið kunni að taka aftur upp eigin gjaldmiðil þar sem fólk í sveitum landsins hafi ekki aðgang að bandaríkjadollurum. Í janúar síðastliðnum afléttu stjórnvöld í Zimbabwe banni við notkun á erlendum gjaldmiðlum. Það var gert til þess að reyna að stemma stigu við óðaverðbólgu sem var tvöhundruð og þrjátíu milljón prósent. Zimbabwe dollarinn var nánast verðlaus. Þetta leiddi til þess að verð lækkaði og vörur streymdu aftur í hillur verslana sem áður höfðu staðið auðar. Þegar hömlunum var aflétt spáðu hagfræðingar því að þetta myndi koma illa niður á almennum borgurum landsins. Flestir þeirra fengju áfram greidd laun í Zimbabwe dollurum en neyddust til þess að greiða fyrir vörur og þjónustu í bandaríkjadollurum. Það hefur nú komið í ljós að þetta var rétt mat. Dagblaðið Herald í Zimbabwe hefur í dag eftir Robert Mugabe að gjaldmiðlaskiptin hafi haft skelfilegar afleiðingar í sveitum landsins. Þar neyðist fólk til þess að nota búfénað sinn sem gjaldmiðil og það gangi ekki. Því sé nú verið að íhuga að taka Zimbabwe dollarann upp á nýjan leik sem eina gjaldmiðilinn. Þetta stangast alveg á við það sem Elton Mangoma efnahagsþróunarráðherra sagði fyrr í þessari viku. Hann lofaði því á fundi með fjárfestum að fast yrði haldið við bandaríkjadalinn.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Sjá meira