Nígería: Þúsundir flýja að heiman 30. júlí 2009 04:00 Mæður og börn þeirra leituðu skjóls í lögreglustöð í bænum Maiduguri eftir að herskáir íslamistar tóku hóp bæjarbúa í gíslingu. Mynd/AFP
Hörð átök geisa nú í norðanverðri Nígeríu milli íslamskra uppreisnarmanna og stjórnarhersins. Átökin hafa kostað tugi manna lífið og þúsundir almennra borgara á svæðinu hafa flúið heimili sín. Blaðamenn á svæðinu fullyrða að átökin hafi byrjað á sunnudag þegar hópur uppreisnarmanna réðst á lögreglustöð í Bauchi-héraði. Síðan hafi þeir ráðist á lögregluna í héruðunum Kanu, Yobe og Borno. Umaru Yar'Adua, forseti landsins, sagði þetta ekki rétt, því stjórnarherinn hafi orðið fyrri til að gera árás á uppreisnarmennina, sem hafi verið að undirbúa árásir. „Ég vil leggja áherslu á að þetta er ekki trúarbragðastríð og það var ekki talibanahópurinn sem réðst fyrst á öryggissveitirnar," sagði forsetinn í gær, áður en hann hélt í opinbera heimsókn til Brasilíu. „Ástandið er viðráðanlegt," bætti hann við. Þrátt fyrir þetta hefur almenningur orðið illa úti. Í gær höfðu meira en fjögur þúsund manns flúið að heiman, en nákvæmar tölur um mannfall liggja ekki fyrir. Þó er vitað að tugir manna hafa látist. Við járnbrautarstöðina í Maiduguri, sem er höfuðborg Borno-héraðs, segir fólk að skotbardagar hafi haldið fyrir því vöku alla nóttina. Þegar birta tók af degi streymdi fólk út úr húsum sínum með brýnustu nauðsynjar í farangrinum. Á þriðjudag settu stjórnvöld á útgöngubann að næturlagi, og síðan hafa hermenn verið á hverju götuhorni. Samtökin, sem barist er við, ganga undir ýmsum nöfnum, meðal annars Al-Sunna wal Jamma, sem þýðir „Fylgismenn kenninga Múhameðs", og Boko Haram, sem þýðir „Vestræn menntun er synd". Sumir ráðamenn í Nígeríu hafa kallað þau talibanasamtök, en ekki er vitað um nein tengsl þeirra við talibanahreyfinguna í Afganistan og Pakistan. Stjórnmálaskýrendur segja óróleikann nú hafa átt sér nokkurra mánaða aðdraganda. Lögreglan hafi gert árásir á bækistöðvar hreyfingarinnar og fundið þar sprengiefni og vopn. Óeirðir og átök milli trúarhópa og nágrannasamfélaga, meðal annars út af vatni og landsvæðadeilum, hafa brotist út reglulega í norðanverðri Nígeríu. Oft standa stjórnmálamenn og trúarleiðtogar á bak við slík átök.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira