Tugir á spítala eftir að kona sprautaði ilmvatni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 30. júlí 2009 08:15 Umbúðirnar eru gjarnan sakleysislegar en innihaldið getur þó verið varhugavert.
Rúmlega 30 voru fluttir á sjúkrahús í Fort Worth í Texas eftir eiturefnaslys sem reyndist eiga sér óvenjulegar rætur. Slökkvilið borgarinnar og aðrir viðbragðsaðilar fóru þegar að gera ráðstafanir þegar tilkynnt var um tugi starfsmanna í símaþjónustuveri fyrirtækis nokkurs sem kvörtuðu yfir sljóleika, höfuðverk og ógleði fyrr í vikunni. Óttast var að kolsýringur eða annað hættulegt efni læki um bygginguna og voru þegar gerðar ráðstafanir til að rýma hana. Menn urðu því dálítið kindarlegir þegar uppspretta þessa stórskaðlega eiturefnis fannst loksins en það var ilmvatnsglas í eigu eins starfsmannsins. Og reyndar kom það á daginn að þegar farið var að rifja upp hvernig þetta byrjaði allt saman hafði það einmitt verið eftir að manneskjan dró ilmvatnið upp og dældi því yfir sig eftir kúnstarinnar reglum. Slökkviliðisstjórinn sagði að smitandi ótti hefði svo valdið hálfgerðri ofsahræðslu sem magnaði allt saman upp enda voru 34 fluttir á sjúkrahús með öndunarerfiðleika og hina og þessa verki. Ekki hefur fengist uppgefið hvaða ilmvatnstegund var þarna á ferð en fullyrða má að notkun þess á mannmörgum vinnustöðum sé stórvarasöm, jafnvel banvæn.
Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Sjá meira