Erlent

Botsvana með mesta lýðræðið

Íbúar Botsvana eru ánægðir með lýðræðið sem þeir búa við. 
nordicphotos/afp
Íbúar Botsvana eru ánægðir með lýðræðið sem þeir búa við. nordicphotos/afp

Fleiri Afríkubúar vilja nú lýðræði en áður. Samkvæmt nýrri könnun sem gerð var í nítján löndum álfunnar hefur stuðningsmönnum lýðræðis fjölgað um fimm prósent síðan 2005, þegar fjörutíu prósent afrískra borgara vildu lýðræði.

Ofbeldi og spilling hefur sett sitt mark á kosningar í mörgum ríkjum Afríku og þykir það valda vantrausti fólks á þeim stjórnvöldum sem þó teljast styðjast við lýðræði. Stóraukinn stuðningur mælist við lýðræði í Gana og á Grænhöfðaeyjum. Orðstír lýðræðis er þó bestur í Botsvana, þar sem 91 prósent íbúa telur sig búa við mikið lýðræði. Botsvana hefur verið lýðræðisríki síðan það fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1966. - hds




Fleiri fréttir

Sjá meira


×