Erlent

Obama tekst á við Gaza eftir að hann tekur við embætti

Barack Obama hyggst bregðast við ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs um leið og hann tekur við embætti þann 20. janúar næstkomandi.

Athygli hefur vakið að hann hefur hingað til ekkert tjáð sig um átökin á Gaza. Obama sagði á blaðamannafundi í dag að honum þætti það ekki viðeigandi fyrr en hann hefði tekið við embætti. Hann sagðist þó hafa þungar áhyggjur af ástandinu á svæðinu.

„Ég er að gera allt sem við þurfum að gera til að tryggja það að daginn sem ég tek við embætti séum við reiðubúin til að takast strax á við ástandið þarna," sagði Obama og bætti við að ekki yrði unnið með skammtímafrið í huga. Ætlunin væri að reyna að tryggja frið til framtíðar á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×