Erlent

Rannsóknum á kvíða fleygir fram

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Mannsheili.
Mannsheili.

Efni, sem gengur undir heitinu FGF2 og stjórnar vexti heilans, gæti haft töluvert að segja um það hverjir verða kvíðasjúklingar og hverjir ekki. Þetta hafa vísindamenn við Háskólann í Michigan sýnt fram á og birta niðurstöður sínar í ritinu Journal of Neuroscience. Efninu var sprautað í rottur í mismiklu magni og kom þá í ljós að þær rottur sem fengu meira magn af efninu voru mun rólegri en hinar sem fengu minna. Síðarnefndu rotturnar sýndu mun meiri kvíðaeinkenni en samanburðarhópurinn og telja rannsakendur að svipaða virkni megi heimfæra upp á manneskjur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×