Sarah Palin sár og reið 12. janúar 2009 12:37 Sarah Palin, fyrrverandi varaforsetaframbjóðandi.
Sarah Palin er ekki búin að jafna sig eftir ósigurinn í bandarísku forsetakosningunum. Hún er bitur út í fjölmiðla sem hún segir hafa gert grín að sér. Sarah Palin segir að fjölmiðlar hafi hatað sig og komið fram við sig eins og hún væri einhver ómenntuð undirmálskerling ofan úr fjöllum. Palin lætur þessi orð falla í nýrri heimildarmynd eftir íhaldsmanninn John Ziegler. Myndin er ekki fullgerð en Ziegler hefur sett hluta hennar á netið. Myndin hefur fengið nafnið Misnotkun fjölmiðla, hvernig Obama var kosinn. Nafnið gefur kannski nokkta hugmynd um útgangspunkt kvikmyndagerðarmannsins sem segir í bloggfærslu með myndinni á netinu að það sé þjóðarharmleikur hvernig fjölmiðlar hafi hæðst að Palin. Þeir myrtu hana, segir hann. Palin kvartar einnig undan meðferðinni á fjölskyldu sinni. Sérstaklega að efast hafi verið um að hún væri móður yngsta barns síns, sem er með Downs heilkenni. Einnig hvernig fjallað var um að dóttir hennar var ófrísk utan hjónabands. Í því efni fékk hún raunar stuðning frá Barack Obama sem fordæmdi allar árásir á fjölskyldu hennar. Palin segir að stéttaskipting hafi verið augljós í umfjöllun um framboð hennar til embættis varaforseta. Hún bendir á að Caroline Kennedy dóttir Johns Kennedys fyrrverandi forseta, sækist nú eftir að verða öldungadeildarþingmaður. Umfjöllun fjölmiðla um það hafi verið afskaplega mjúk, sem sýni að stéttaskipting ráði einnig ferðinni í fjölmiðlum.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Sjá meira