Flestir flugmenn sofna undir stýri Óli Tynes skrifar 5. október 2009 10:15
Flugáhafnir í tuttugu og tveim Evrópulöndum hefja í dag herferð gegn nýjum vinnutímareglum sem Evrópusambandið setti í júní síðastliðnum. Samkvæmt þeim skal vinnutími flugliða vera sextíu klukkustundir á viku sem getur leitt til þess að þeir þurfi að vera allt að fjórtán klukkustundir samfellt á vakt. Þetta er mikil aukning í mörgum landanna. Í Danmörku var vinnuskyldan til dæmis fjörutíu og fimm klukkustundir. Flugliðarnir halda því fram að þetta stórskaðí flugöryggi þar sem áhafnirnar geti orðið örþreyttar ef þær lendi í langri törn. Mogens Holgaard formaður félags danskra atvinnuflugmanna bendir á sérfræðirannsókn sem birt var í september á síðasta ári. Fimmtíu fórust í Buffalo Jafnvel þá hafi verið mörg dæmi um of langan vinnudag og flugliðar í sjö af hverjum tíu áhöfnum hafi viðurkennt að á þá hafi sigið svefn meðan á flugi stóð. Holgaard bendir á flugslysið sem varð í Buffalo í Bandaríkjunum í febrúar síðastliðnum. Þá fórust fimmtíu manns í lendingu. Rannsókn á slysinu hafi leitt í ljós að flugmennirnir hafi gert mistök vegna þreytu. Það slys hafi leitt til þess að verið sé að endurskoða reglur um vinnutíma þar í landi. Vekjaraklukkur í pósti Til þess að vekja athygli á herferð sinni hafa samtök danskra flugliða sent öllum þingmönnum landsins vekjaraklukku í pósti. Klukkunni fylgja þau skilaboð að þingmennirnir ættu að taka klukkuna með sér og lána áhöfninni, næst þegar þeir fara í flug.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira