Erlent

Sex menn fórust í átökum Hamas og Fatah

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stuðningsmaður Hamas mótmælir aðgerðum Fatah. Mynd/ AFP
Stuðningsmaður Hamas mótmælir aðgerðum Fatah. Mynd/ AFP
Sex menn fórust þegar sérsveitir Fatah hreyfingarinnar börðust við Hamasliða í borginni Qalqilya á Vesturbakkanum í gær. Vefsíða breska blaðsins Telegraph segir að um sé að ræða verstu bardaga milli Palestínumanna, sem hafa átt sér stað utan Gaza, í mörg ár.

Þetta gerðist þegar sérsveitir Fatah hreyfingarinnar reyndu að handtaka hátt setta Hamasliða. Atvikið er sagt minna á mikið blóðbað sem varð á Gaza fyrir tveimur árum síðan þegar Hamas hreinlega þurrkaði út lið Fatah.

Spennan hefur aukist milli fylkinganna tveggja á Vesturbakkanum á undanförnum mánuðum og er hún rakin til þess að sérsveitir Fatah, sem eru þjálfaðar af Bandaríkjamönnum og Bretum, hafa sótt að Hamas.

Talsmenn Hamas saka Fatah um að ganga erinda Ísraela á Vesturbakkanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×