Erlent

Svínaflensan komin til Líbanon

Lyfið Tamiflu þykir virka vel gegn svínaflensu. Mynd/ AFP.
Lyfið Tamiflu þykir virka vel gegn svínaflensu. Mynd/ AFP.
Svínaflensa hefur greinst í fyrsta sinn í Líbanon. Þrír hafa veikst af flensunni þar í landi að sögn líbanskra heilbrigðisyfirvalda. Fólkið fái nú læknismeðferð og sé á batavegi. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin segir að fleiri en fimmtán þúsund og fimm hundruð manns hafi smitast af svínaflensunni víða um heim. Níutíu og níu hafi látist af völdum hennar, flestir í Mexíkó. Aðeins er vitað um eitt smit á Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×